|
Sýningin Birdfair 20.-22.08.2010, Rutland á Englandi
Birdfair er stærsta fuglaskoðunarsýning Evrópu.
Ca. 20 þúsund gestir sækja sýninguna.
Níu íslensk fyrirtæki er starfa í ferðatengdri þjónustu við fuglaskoðara tóku þátt:
Gavia Travel,Vesturferðir, Fuglar á Suð-Austurlandi, Breiðafjarðarfléttan, Fuglar á Suðurlandi, Emmson, Sveitasetrið á Hofstöðum, Fuglar á Norð-Austurlandi, Hótel Brimnes og Sveitasetrið á Hofstöðum.
Birdfair býður upp á flott tækifæri til að hitta náttúruunnendur, með möguleika á að byggja upp sambönd við hugsanlega viðskiptavini.
Íslandsstofa hefur unnið að uppbyggingu á ferðatengdri þjónustu við fuglaskoðara síðustu misserum, m.a. með þátttöku í Birdfair annað árið í röð. Á sýningunni er að finna allt það nýjasta sem tengist fuglaskoðun og fuglarannsóknum.
„Sýningin er fjölsótt og afar mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að taka þátt í henni,“ segir Björn H. Reynisson hjá Íslandsstofu sem hafði veg og vanda af undirbúningi, í samvinnu við Samtök um fuglatengda ferðaþjónustu.
Að mínu mati er erfitt að segja hvort þetta hafði bein jákvæð áhríf á að fá fleiri ferðamenn inn á okkar svæði, kannski einn og einn. Þetta er markaður sem tekur töluverðan tíma að vinna upp og er gott að vera samferða frumkvöðlunum í því.
Mjög áberandi á þessari sýningu var líka það að Bretar eru einnig mikið að finna fyrir áhrifum krísunnar og þess vegna eiga þeir minna fjármagn til að ferðast en áður.
Mér finnst fyrst og fremst mikilvægt að vinna saman og vera sterk í heildina til að ná fleiri ferðamenn til Íslands almennt, hitt fylgir sjálfkrafa.
Samtals vorum við 16 manns frá Íslandi og fannst mér það frekar mikið þrátt fyrir 3 daga.... spurning um að senda bara einn aðila frá Fléttunni næst.
Bæklingurinn okkar þarf að vera enn nákvæmari fyrir þessa markhópa, hvar fuglar sjást og hvaða tegundir.
Talað var um að fara einnig 2011 á sýningu eins og Birdfair í Bandaríkjunum – hér er um að ræða annan áhugaverðan markhóp sem er ekki hægt að líkja við Breska fuglaskoðara. Okkur finnst mikilsvert að Fléttan haldi áfram að sinna þessu verkefni.
12.10.2010, Nadine Walter |